Tilbúin án gólfefna
Austurkór 94 Kópavogi
Um er að ræða 6 íbúða fjölbýlishús á þremur hæðum og eru allar fjögurra herbergja. Aðkoma að íbúðum er um opinn stigagang með forsteyptum stigum og heitgalvanseruðum handriðum. Inntaks og tæknirými eru á jarðhæð og er sameiginleg hjóla og vagnageymsla inn af þeim. Sameiginleg hitalögn er fyrir húsið. Á jarðhæð hafa íbúðir sér afnotarétt. Hellulagt er undir svölum.Skjólveggir fylgja ekki. Hönnuður er Kristinn Ragnarsson, landslagsarkitekt Teiknistofan Storð ehf og verkfræðiteikningar af VHÁ.
Frágangur utanhúss
Húsið er byggt úr járnbentri steinsteypu, einangrað að innan og steinað að utan með ljósum lit. Allir gluggar eru trégluggar frá Gluggasmiðjunni, hvítmálaðir að innan og utan. Gler er frá Glerborg, tvöfalt K-verksmiðjugler með 5 ára verksmiðjuábyrgð. Slétt þak á húsi er frágengið með sarnafil dúk. Handrið á svölum eru steypt ásamt tveimur galfaniseruðum rörum í efri brún. Bílastæði eru malbikuð, stéttar hellulagðar eða steyptar. Lóð afhent fullbúinn án leiktækja og trjágróðurs. Hitalögn í stétt við inngang.
Frágangur innanhúss
Innveggir eru sumir steyptir en aðrir veggir eru léttir með tvöföldu gifsi. Léttir veggir á böðum eru hlaðnir. Allir veggir og loft eru sandspörsluð, grunnuð og máluð í ljósum lit. Allar innréttingar eru frá HTH innréttingum, Model Next-háglans sprautulakkað / 5100-eikar melalin,(Baldur Már). Eldhústæki frá Bræðurnir Ormson (Ólafur Már). Innihurðir eru yfirfeldar með samlokukörmum. Flísar eru frá Álfaborg Knarravogi 4. (Ragnar Már) Hreinlætis og blöndunartæki eru frá Tengi hf. Smiðjuvegi 11 a. (Jón Ari). Seljandi áskilur sér rétt til að breyta lítillega þykkt á veggjum vegna lagna á þvottahúsi og baði.
Herbergi og andyri
Innihurðir eru yfirfelldar með eikarspón. Fataskápar eru í öllum svefnherbergjum.
Stofa
Sólbekkir eru úr hvítu harðplasti (Formica).
Eldhús
Model Next-háglans sprautulakkað / 5100-eikar melalin. Borðplötur eru úr harðplasti. Eldhústæki eru keramik helluborð, fjölvirkur veggofn og veggháfur. Í borði er stálvaskur og blöndunartæki.
Baðherbergi
Innrétting á bað er viðarinnrétting eða sprautulökkuð með harðplast borðplötu. Salerni er innbyggt í vegg með harðri hæglokandi setu. Baðkar er 170X70 cm.. Sturta með hitastýrðu blöndunartæki, gler hliðum og botn flísalagður. Handlaug er hvít með einnar handar blöndunartæki. Spegill með ljósi. Gólf flísalagt og veggir upp í ca. 2 m. hæð. Ljóskúpull í lofti en önnur ljós fylgja ekki. Gólfhiti er á baði og handklæðaofn.
Þvottahús
Þvottahús er með tengingu fyrir þvottavél og þurrkara. Ekki er gert ráð fyrir útblæstri frá þurrkara.
Sameign
Í sameign eru steyptir veggir slípaðir með máluðum gólfum í hjóla og vagnageymslu. Handrið á stigagangi eru úr járni og rafgalfaniseruð.
Geymsla
Steyptir veggir eru slípaðir . Allir veggir og loft eru málaðir ljósum lit.
Rafmagn
Útiljós og vatnsvarðir tenglar verða á svölum, veröndum og við inngang. Kúplar í lofti á stigagangi.Ekki er gert ráð fyrir dyrasíma. Sjónvarps og símatenglar í hverju herbergi. Sjónvarpskerfi er tengt við ljósleiðara,ekki loftnet. Reykskynjari og eitt handslökkvitæki fylgja hverri íbúð.
Bílskúrar
Útveggir eru einangraðir og múraðir að innan. Steyptir veggir og loft eru gróf slípaðir.Tengingar fyrir vaski, heitu og köldu vatni. Bílskúrshurðir eru frá Gluggasmiðjunni. Þak er frágengið með sama hætti og húsið
Almennt
Bílastæðin verða malbikuð, og lóð tyrfð. Sérlóð fylgir íbúð á jarðhæð sbr. teikningu og eignaskiptayfirlýsingu.
Gjöld og annað
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður innheimt. Seljandi sér um greiðslu á gatnagerðargjöldum sem og byggingaleyfisgjöldum. Annað sem ekki er tekið fram í skilalýsingu fylgir ekki með í kaupum.